Well smá blogg svona til tilbreytingar.
Allt gott að frétta, er reyndar búin að vera með kvef
dauðanns í viku og Konni líka en það hlítur að fara að
lagast. Sem betur fer hafa stelpurnar sloppið. Það er komin
rútína á famelíuna aldeilis, Sara byrjuð í skólanum og Auður
á leikskólanum þannig að ég er farin að vinna meira á daginn
og djöfull er það nú gott.......alveg komin með ógeð á að
vinna öll kvöld þegar flestir eru í fríi. Auður er svona
alveg að aðlagast leikskólanum, ég fer reyndar frá henni
grátandi alla morgna....ekkert smá erfitt en þetta fer alveg
að koma hjá henni, dagurinn í dag gékk t.d mjög
vel!!!!
Sara skrapp til Reykjavíkur í dag og ætlar að vera yfir helgina,
ekkert smá spennt. Verð nú bara að segja ykkur frá því að ég keypti
buxur handa henni í dag og ég keypti sem sagt stærð fyrir 12 og 13
ára, hún er ekkert lítil þessa elska onei.
Er í fríi um helgina og ætla að hafa það bara næs, brjálað að
gera á Laugardaginn, fer í brúðkaup til Aldísar og Balla og svo er
Hrönnsa þrítug og það er svaka veisla hjá henni í Deiglunni. Það
verður bara gaman.
Svo langar mig rosalega að skreppa til Keflavíkur bráðlega og
heimsækja Sigga bró og gellurnar hans. Þau fluttu þangað nýlega og
maður er bara strax farinn að sakna þeirra. Það byrjar reyndar
ekkert vel hjá Sonju greyinu. Hún byrjaði hjá dagmömmu og allt í
lagi með það nema það að það var kveikt í rólóvellinum hennar.
Sonja bara í ruglinu. En held að annars gangi bara allt vel hjá
þeim.
Jæja ætla ekkert að vera að hafa þetta lengra í bili bið ykkur
bara vel að lifa
Alltílagi bleeeeeeeeeees